Stutt og laggott.
Fór í Elliðavatn í morgun. Planið var að fara snemma í Vífó og athuga með bleikjuna sem var þar í stuðinu í gær en þar sem betri helmingurinn svaf vært var um lítið annað að ræða en að liggja í leti yfir Svampi Sveinssyni ásamt erfingjanum.
Þegar frúin svo loksins hafði sig á lappir var klukkan komin fast að 10 og ákvað ég því frekar að fara í Elliðavatn þar sem ég var viss um að pakkað yrði við suðurbakkann í Vífó. Fréttir af aflabrögðum eru engar. Sá slatta af uppítökum en eitthvað var ég að gera vitlaust. Veðrið var gullfallegt þegar ég mætti en svo bætti töluvert í vind.
Var kominn heim um hádegisbil enda Liverpool leikur á dagskrá og ekki missi ég af því!
Eftir leik skrapp ég í skottúr í Vífó (ég á aaaaaaafar skilningsríka konu :). Það var bölvað rok og ég var einn um vatnið. Kastaði með allri suður hliðinni á vatninu en sá ekki sporð og fékk ekki högg.
Þannig fór þessi dagur. Tveir skottúrar og núllað í bæði skiptin. Ég er að skrifa þetta rétt rúmum hálftíma eftir að ég kom heim úr Vífó og ég get hreinlega ekki beðið eftir að komast aftur í veiði.